Það er mikið um að vera á knattspyrnusviðinu í Eyjum í dag. Auk bikarleiks ÍBV og Stjörnunnar kl. 14.00 verður einnig leikur KFS og KFK á Helgafellsvelli og hefst sá leikur einnig kl. 14.00. Þessi tvö lið berjast um laust úrslitasæti í B-riðli 3. deildar.