Bergey landaði fullfermi fyrir austan
jon_valgeirs_opf
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. Rætt er við Jón Valgeirsson skipstjóra á vef Síldarvinnslunnar. Þar er hann spurður hvernig hefði gengið.

„Við lögðum af stað frá Akureyri eftir að hafa verið þar í slipp og fórum austur fyrir land. Við leggjum nú áherslu á ýsuveiði en það eru býsna margir sem gera það um þessar mundir. Við urðum lítið varir við ýsu fyrr en við komum á Hvalbakssvæðið. Þar fengum við þokkalegustu ýsu, dálítið þorskblandaða. Túrinn tók tæpa viku og það var gott veður allan tímann. Aflinn þarna við Hvalbakinn var bestur yfir daginn en það var heldur minna að hafa á næturnar. Staðreyndin er sú að það fiskast almennt ekkert sérstaklega vel um þessar mundir en það getur breyst eins og hendi sé veifað,” sagði Jón.

Nýjustu fréttir

Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.