Bæjarráð ákvað á fundi sínum í síðustu viku að hækka lægstu laun starfsmanna Vestmannaeyjabæjar. Starfsmenn hækka upp í launaflokk 120, óháð því hversu lengi starfsmaðurinn hefur verið í starfi en eingöngu er um að ræða fastráðna starfsmenn. Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir þetta vera skilaboð til samninganefndar um að lægstu laun séu of lág.