�??Ekki er hægt að ganga að því vísu að fiskiskipaflotinn sé í höfn ef eitthvað kemur upp á og rýma þarf bæinn líkt og gerðist í gosinu 1973,�?? segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja.
Á laugardaginn kynnti Páley Borgþórsdóttir, lögrelgustjóri lögregluumdæmisins í Vestmannaeyjum, sérstaka viðbragðs- og rýmingaráætlun fyrir bæinn, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
�??Við erum að leggja lokahönd á þessa sérstöku viðbragðsáætlun fyrir bæinn og sáum fyrir okkur að samþykkja hana laugardaginn 23. janúar þegar 43 voru liðin frá upphafi gossins. �?að náðist ekki en við vildum engu að síður kynna drögin að henni fyrir íbúum á þessum degi,�?? segir Páley en þetta er fyrsta sérstaka viðbragðsáætlunin sem unnin er fyrir Vestmannaeyjar.