Segja lundastofninn í hættu
Peysja og lundi í lundabyggð á Heimaey. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Rannsóknir og vöktun á lundastofninum sýna að lunda hefur fækkað mikið við Íslandsstrendur síðustu 30 ár. Af þeim ástæðum biðla Náttúruverndarstofnun og umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið til veiðimanna og veitingageirans að gæta hófs við lundaveiðar og sölu á lundakjöti. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá áðurnefndri stofnun og ráðuneyti.

Veiðar valda fækkun á lunda

Jafnframt segir í tilkynningunni að við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir lundastofninn hafi Náttúrverndarstofnun, áður Umhverfisstofnun fengið tvo óháða sérfræðinga, Dr. Fred A. Johnson og Dr. Carl Walters, til að rýna gögn Náttúrustofu Suðurlands og hugsanleg áhrif veiða á lundastofninn.

Helstu niðurstöður eru  þær að langtímafækkun lundastofnsins á Íslandi sé líklega vegna uppsafnaðra áhrifa veiða og óhagstæðra umhverfisaðstæðna, til að mynda hás sjávarhita. Hlýskeið í Atlantshafi síðustu þrjá áratugi hefur valdið því að minna framboð er af helstu fæðu lundans. Niðurstöður þeirra Johnson og Walters eru að áframhaldandi veiðar, sambærilegum þeim sem hafa áður verið, séu líklegar til að valda frekari rýrnun stofnsins.

Biðlað til veiðimanna og veitingahúsa

Stór hluti af lundaveiðiafla hvers árs er seldur til veitingahúsa og því eru veiðimenn hvattir til að gæta hófs við veiðar. Biðlað er til veitingahúsa að skoða til hlítar hvort lundi eigi heima á þeirra matseðli í ljósi þess hve stofninn er viðkvæmur og veiðar úr honum geti því ekki talist sjálfbærar.

Unnið er að nýju stofnlíkani þar sem tekið verður tillit til sjávarhita og veiðiþols stofnsins, með það að markmiði að hægt verði að spá fyrir um æskilega veiði með nokkurra ára fyrirsjáanleika. Slík nálgun er til þess að fallin að stuðla að sjálfbærum veiðum í framtíðinni, en ólíklegt þykir að stofninn þoli veiðar af því magni að þær standi undir reglulegri sölu til veitingahúsa, segir í tilkynningunni.

 

Nýjustu fréttir

Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.