Langar þig að standa fyrir menningar- eða listviðburði?
25. janúar, 2013
Á milli klukkan 16.30 og 18.00 í dag verður Dorothe Becki, menningarfulltrúi Suðurlands til viðtals í Ráðhúsinu. Allir sem hafa áhuga á að standa fyrir viðburðum á lista- og menningarsviði eru hvattir til að mæta.