Eyjakonan Edda Andrésdóttir, fjölmiðlamaður, hefur lokið við að skrifa minningabók úr Eyjum og úr gosinu. Edda sneri aftur á æskuslóðir, nýorðin blaðamaður hjá Vísi og fylgdist með æskuslóðunum á Kirkjubæ hverfa undir hraun. Bókin, Til Eyja, kemur út í október en Edda segist vitja þar liðinna tíma.