Loðnu varð einungis vart út af vestanverðu Norðurlandi með landgrunnskantinum frá Kögurgrunni austur að Kolbeinseyjarhrygg í árlegri bergmálsmælingum á loðnu á hafsvæðinu milli Grænlands, Jan Mayen og Íslands ásamt hefðbundnum sjórannsóknum á þessum árstíma. Á þessu svæði var bæði ungloðna og eldri loðna saman í samfelldri gisinni dreif en ekki torfum. Fjöldi eins árs loðnu (ungloðna) mældist um 12,5 milljarðar sem er langt undir því marki að hægt sé að að mæla með upphafskvóta fyrir vertíðina 2009-2010.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst