Magnús Gylfason, þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu er hættur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá knattspyrnudeild ÍBV en þeir Dragan Kazic, sem var aðstoðarþjálfari hjá Magnúsi, mun klára tímabilið hjá ÍBV og Ian Jeffs verður honum innan handar.