Stærð hrygningarstofns makríls hefur verið endurmetin og er hann nú talinn 77% stærri en samkvæmt niðurstöðum Alþjóðahafrannsóknaráðsins í fyrrahaust. Stofninn er ekki lengur metinn undir varúðarmörkum, segir í frétt á mbl.is
Því er líklegt að ráðgjöf ICES um veiðar þessa árs verði endurskoðuð á næstunni, að sögn Guðmundar J. Óskarssonar, fiskifræðings á Hafrannsóknastofnun, sem sæti á í vinnuhópi ICES. Það gerist þó ekki sjálfkrafa heldur þurfa strandríkin að fara fram á það og hafa fulltrúar þeirra rætt við ICES um þessa stöðu og framhaldið, segir Guðmundur í umfjöllun um makrílinn í Mmorgunblaðinu í dag.
Hrygningarstofninn er nú metinn vera 4,16 milljón tonn, en í haust var hann metinn um 2,35 milljón tonn að stærð. Þegar ráðgjöfin lá fyrir í fyrrahaust komu fram talsverðar efasemdir um niðurstöður stofnmatsins. Í kjölfarið var ákveðið að fara í saumana á líkaninu á vettvangi ICES.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.