Þann 6. febrúar sl. vísaði Héraðsdómur Suðurlands frá dómi kröfu Stillu útgerðar ehf. o.fl. um að lagt verði lögbann við sameiningu Vinnslustöðvarinnar hf. og Ufsabergs-Útgerðar ehf. Ákvörðun um sameiningu var tekin á hluthafafundi í Vinnslustöðinni hf. þann 21. september sl. og telja umbjóðendur mínir, sem eiga rúmlega 30% hlutafjár í Vinnslustöðinni, að ákvörðunin sé ólögmæt.