Á laugardaginn fór fram góðgerðargolfmótið Herminator Invitational en það er Eyjapeyinn Hermann Hreiðarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, sem stendur fyrir mótinu. Fjölmörg þekkt andlit tóku þátt í mótinu, margir núverandi og fyrrverandi íþróttastjörnur en margir klæddu sig upp í búninga og tóku búningakeppni mótsins alvarlega. Mótið var þó á léttu nótunum en megintilgangur þess er að safna fé til góðgerðamála.