KFS leikur síðasta heimaleik sinn í B-riðli 3. deildar í dag þegar liðið tekur á móti Afríku. Leikurinn hefst klukkan 14.00 og fer fram á Helgafellsvellinum. Eyjamenn eiga enn ágæta möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Sá möguleiki felst í því að vinna tvo síðustu leikina, það dugar KFS til að tryggja sér annað sæti riðilsins.