Vinna við kvótafrumvarpið var ekki jafn langt komin og búast hefði mátt við sagði Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á opnum fundi í Vestmannaeyjum í kvöld. Steingrímur fór þar yfir stöðu mála síðan hann tók við frumvarpsgerð úr höndum Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, um áramót.