Í dag laugardaginn 6 október var Beddi á Glófaxa jarðsunginn frá Landakirkju, en andlát Bedda var mikið áfall fyrir okkur félaga í Kiwanisklúbbnum Helgafelli, eins og fyrir okkar góða samfélag hér í Vestmannaeyjum. Beddi var farsæll útgerðarmaður og mikill höfðingi í alla staði og lét einnig aðra njóta velgengi sinnar, bæði einstaklinga, Kiwanis, og síðan en ekki síst ÍBV íþróttafélag þar sem Beddi var sterkur bakjarl. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að vera með skipsrúm hjá Bedda á árum áður bæði á netavertíð og síldarvertíð, en á síldinni var verið mikið að veiðum fyrir austan, og landlegum því eitt á Neskaupstað, en þar var Beddi líka á heimavelli, og áttum við oft á tíðum skemmtilegar stundir þar.
Einnig minnist ég þess að þegar eithvað var að gerast í Kiwanis þá heyrðist fljótlega í karli svona uppúr hádeg i “Inn með rúlluna” og þá var brunað í land til að karlinn kæmist á ball með Dúllu sinni í Kiwanis.
Beddi var söngmaður góður og tók oft lagið á Kiwaisskemmtunum ásamt því að vera driffjöður í kór eldriborgara nú í seinni tíð.
Það er stórt skarð höggvið í Kiwanisklúbbin Helgafell og okkar samfélag hér í Eyjum við fráfall Bedda, og við Dúllu og fjölskyldu sendum við okkar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur.
Minningin um góðann félaga og vin lifir.
Fh. Kiwanisklúbbsins Helgafells
Tómas Sveinsson





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.