Fyrihugað er að vígja minningarstein um Lárus heitinn Jakobsson sem lést langt um aldurfram, 36 ára gamall. Lárus var frumkvöðull af stofnun Tommamóts Týs, sem síðar varð fyrirmynd annara knattspyrnumóta sem haldinn eru um allt land. Nokkrir vinir Lárusar reistu þennan stein og er verkið stutt af Vestmannaeyjabæ, Knattspyrnusambandi Íslands, Skeljungi, Ísfélagi Vestmannaeyja og Eimskip. Afhjúpun minningarsteinsins, sem reistur er austan við Týsheimilið, verður þann 1. maí nk. kl. 16:30 á fyrsta heimaleik ÍBV og afmælisdegi Týs.
Textinn á steininum er: Með eldmóði sínum, framkvæmdargleði og þrautseigju lagði hann grunn að fyrsta stórmótinu fyrir ungt knattspyrnufólk á Íslandi árið 1984.
Lífsstarf Lárusar er samferðarmönnum innblástur til góðra verka í þágu samfélags síns og íþróttahreyfingarinnar.
Von er að sem flestir samferðarmenn Lárusar sjái sér fært að mæta og heiðra minningu Lárusar.