Niðurstöður úthlutunarnefndar um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla 2023

Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Niðurstöður úthlutunarnefndar hafa verið birtar á vef Fjölmiðlanefndar.

Úthlutunarnefnd skipa Anna Mjöll Karlsdóttir lögfræðingur (formaður), samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, Anna Birgitta Geirfinnsdóttir löggiltur endurskoðandi, samkvæmt tilnefningu Ríkisendurskoðunar og Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor við Háskóla Íslands, samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra.

Alls bárust 28 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 962 milljónir kr. Þremur umsóknum var synjað þar sem þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir rekstrarstuðningi skv. 62. gr. g laga um fjölmiðla nr. 38/2011.

Í 62. gr. i laga um fjölmiðla kemur fram að rekstrarstuðningur skuli að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjenda. Þá ráðist endanlegt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna. Auk þess fá staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins 20% álag á upphæð styrks.

Til úthlutunar voru 476,7 millj. kr. að frádregnum kostnaði vegna umsýslu, sérfræðiaðstoðar, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunarnefndar o.fl. sem var um 0,013% af heildarfjárhæð eða 6.182.324 kr. Til úthlutunar voru því 470.517.676 kr.

Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta eftirfarandi 25 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2023:

  • Árvakur hf. 107,155,187
  • Birtíngur útgáfufélag ehf. 20,032,898
  • Bændasamtök Íslands 20,816,416
  • Eigin herra ehf. 3,103,234
  • Elísa Guðrún ehf. 5,931,816
  • Eyjasýn ehf. 2,367,395
  • Fótbolti ehf. 7,678,544
  • Fröken ehf. 10,974,262
  • Hönnunarhúsið ehf. 1,600,769
  • Leturstofan Vestmannaeyjum ehf. 4,020,746
  • MD Reykjavík ehf. 7,855,101
  • Mosfellingur ehf. 2,107,530
  • Myllusetur ehf. 33,997,545
  • Nýprent ehf. 5,950,249
  • Prentmet Oddi ehf. 4,836,300
  • Saganet – Útvarp Saga ehf. 4,732,544
  • Sameinaða útgáfufélagið ehf. 54,701,442
  • Skessuhorn ehf. 15,826,217
  • Sólartún ehf. 16,119,419
  • Steinprent ehf. 2,616,804
  • Sýn hf. 107,155,187
  • Tunnan prentþjónusta ehf. 3,801,810
  • Útgáfufélag Austurlands ehf. 7,460,416
  • Útgáfufélagið ehf. 6,713,182
  • Víkurfréttir ehf. 12,962,661

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.