Fíkniefnavandinn hefur farið vaxandi á Íslandi undanfarin ár og eru Vestmannaeyjar þar engin undantekning. Illa virðist ganga að ná stjórn á þessum vanda en að öllu jöfnu ætti að vera hægt að stýra honum, eða halda honum í lágmarki, með virkum forvörnum og fræðslu til ungmenna. En er eitthvað annað til ráða og hvað getum við gert til að gera samfélagið okkar öruggara fyrir alla?