Íslenski matvælaframleiðandinn ORA er tilnefndur til verðlauna á sjávarútvegssýningunni í Boston. Varan sem fyrirtækið er tilnefnt fyrir nefnist �??Creamy masago bites�??, sem útlagst gæti á íslensku sem rjómakenndir loðnuhrognabitar. Er varan tilnefnd í flokki bestu smásöluvara ársins.
www.mbl.is greindi frá.
Eyjapeyjinn Jóhannes Egilsson, útflutningsstjóri ORA sagði það er mikil viðurkenning að fá tilnefningu sem þessa en það eru einungis tólf vörur sem tilnefndar eru á sýningunni ár hver.�??Creamy Masago Bites�?? er ljúffengur og girnilegur forréttur sem tekur innan við 10 mínutur að útbúa. Rétturinn samanstendur af þremur vörum, masago sem unnið er úr hágæða loðnuhrognum frá Ísfélagi Vestmannaeyja, laxamús sem unnin er úr ferskum íslenskum eldislaxi og sesam-brauðkexi. Hrognunum og laxamúsinni er blandað saman með smá dass af íslensku skyri þannig að úr verður rjómakennd masago-laxamús sem síðan er sett ofan á seasam-brauðkex og skreytt með fersku masagoi, dilli og íslensku sjávarsalti. Rétturinn er afar einfaldur í undirbúningi, lítur girnilega út og er sérlega bragðgóður, segir Jóhannes, fullur tilhlökkunar að kynna Iceland’s Finest-vörulínuna í Boston.