Það er ljóst að einhverjir sem eiga mjög bágt hafa verið á ferðinni í miðbænum í gær. Í morgun blasti ekki fögur sjón við okkur sem fórum um miðbæinn okkar. Aspartrén sem glatt hafa augu okkar allra bæði að sumarlagi sem og á vetrarmánuðum, þá skreytt ljósaseríum, hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvargi eða vörgum sem tóku sig til og brutu greinar af nær hverju einasta tré austan megin á Bárustígnum.