Heyrst hefur að enski bakvörðurinn James Hurst sé á förum frá ÍBV. Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri ÍBV, segir ekkert staðfest í þeim efnum en viðurkennir þó að Hurst gæti horfið með skömmum fyrirvara kalli Portsmouth á hann. Hurst er á lánssamningi hjá ÍBV til 30. ágúst og hann mun alltaf missa af lokaspretti deildarinnar. Fari hann ekki til Englands fyrir þann tíma mun hann ekki geta spilað í heimalandinu.