Planið er að taka nýju álmuna í notkun um páskana
Í síðustu viku reis fjórða og efsta hæðin á viðbyggingu við Hótel Vestmannaeyjar sem byrjað var að reisa sl. vor. Framkvæmdir eru á áætlun og gert ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið um næstu páska. Herbergjum fjölgar úr 21 í 43 og með gistiheimilinu Sunnuhól getur Hótel Vestmannaeyjar tekið 100 manns í gistingu eftir breytingarnar.
�?að var mikill atgangur í kringum hótelið á fimmtudaginn en þá komu einingar í efstu hæðina og þær settar á sinn stað. Verkið er í höndum Byggingafyrirtækisins Steina og Olla. �??Framkvæmdir hafa gengið vel í sumar og planið er að taka nýju álmuna í notkun um páskana í vor, 21. apríl. �?að stendur reyndar knappt en ætti að hafast,�?? sagði Magnús Bragason sem á og rekur Hótel Vestmannaeyjar með �?ddu Sigurðardóttur konu sinni.
Hann segir að stundum hafi verið erfitt að sameina rekstur á hótelinu og byggingaframkvæmdirnar en fólk hafi sýnt því skilning. �??Fólk er líka almennt ánægt og hrifið að því að við skulum yfirleitt þora að fara í þessa framkvæmd.�??
Magnús sagði rekstur hótelsins ganga vel og eru næstu tvær helgar fullbókaðar. �??�?að verður alltaf breyting á haustin. �?á fækkar útlendingunum og Íslendingum fjölgar en þeir koma meira um helgar. �?að er gaman að segja frá því að 31. október verður haustfundur Samtaka ferðaþjónustunnar haldinn í Vestmannaeyjum. Fundinn sækja milli 60 og 70 manns og verður hann haldinn hjá okkur. Að öðru leyti er þetta sameiginlegt verkefni okkar í ferðaþjónustu að taka á móti hópnum. Samstarf okkar er mjög gott sem kemur okkur öllum til góða,�?? sagði Magnús sem telur að stækkun á Hótel Vestmannaeyjum skemmi ekki fyrir öðrum sem reka gistiþjónustu í Eyjum.
�??�?vert á móti. �?etta er passleg stærð og það munu fleiri en við njóta góðs af stækkuninni. �?á getum við m.a. sameinast um að taka á móti stærri hópum.�??

Nýjustu fréttir

Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.