Aðfaranótt 30. janúar var lögreglu tilkynnt að bréfi hafi verið troðið inn í bréfalúgu á húsi við Hásteinsveg og síðan borinn eldur að. Húsráðanda tókst að slökkva eldinn áður en tjón hlaust að. Húseigandinn hafði orðið var við að einhver var að eiga við bréfalúguna og þegar hann kannaði hvað væri að gerast hafi hann tekið eftir eldinum. Ekki er vitað hver þarna var að verki en grunur beindist að ákveðnum aðila og hefur hann þegar verið yfirheyrður. Hann neitað að hafa átt hlut að máli og er málið í rannsókn. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að neðan í heild sinni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst