Verkfall bræðslumanna, sem átti að hefjast klukkan hálf átta á þriðjudagskvöldið, var afboðað á síðustu stundu. Var það mat samninganefndar Afls á Austurlandi og Drífanda í Vestmannaeyjum að verkfall myndi ekki skila tilætluðum árangri. Bæði Ísfélag og Vinnslustöð höfðu gert ráðstafanir miðað við að til verkfalls kæmi. Meðal annars var búið að bræða allt hráefni sem bræðslurnar höfðu tekið á móti.