Það verður kátt í Höllinni og ekkert til sparað föstudagskvöldið 1. júní næstkomandi þegar Rokkhljómsveitin Tyrkja-Gudda stígur á svið og leikur rjómann af bestu rokklögum sögunnar. Fram koma meðal annars stórstjörnurnar Eyþór Ingi, Páll Rósinkranz, Magni & Birgir Haralds úr Gildrunni. Þessa mögnuðu og kraftmiklu hljómsveit, Tyrkja-Guddu, skipa Eyjamennirnir Birgir Nielsen á trommur, Páll Viðar á hammond, Gildrumaðurinn og gítarsnillingnum Sigurgeir Sigmundsson og síðast en ekki síst Dúndurfréttameðlimirnir Einar Jóhanns á gítar og Ingimundur á bassa.