Lokun skurðstofunnar hefur víðtæk áhrif á þjónustu við íbúa í Vestmannaeyjum, m.a. þegar kemur að fæðingum barna. Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Sindri Ólafsson eiga von á sínu öðru barni í lok október en eins og áður hefur komið fram, er stefnt að því að loka skurðstofunni 1. október. Hjónakornin þurfa því að gera það upp við sig hvort þau vilji að barnið komi í heiminn við skert öryggi eða hvort þau fari til Reykjavíkur.