Í hádeginu var tilkynnt hverjir skipuðu lið síðari umferðar efstu deildar Íslandsmóts kvenna í knattspyrnu, Pepsídeildarinnar. Tvær úr liði ÍBV eru í liðinu, þær Shaneka Gordon og Danka Podovac. Þór/KA átti flesta leikmenn í liðinu, eða fimm, ÍBV og Stjarnan voru með tvo og Breiðablik og Valur áttu einn fulltrúa í liðinu.