Sumarið er tími viðburða í Vestmannaeyjum. Þegar einum lýkur tekur annar við. Einn af föstu póstum hvers sumars er Shellmótið og siglir Herjólfur þessa dagana fullur af fólki til Eyja, hverja ferðina á fætur annarri með gesti mótsins. Shellmótið hefst á morgun, fimmtudag, og hefjast leikirnir kl. 8.20. Leikið verður á Hásteinsvelli, Helgafellsvelli, Þórsvelli og Týsvelli og einhverjir leikir verða í Eimskipshöllinni. Að þessu sinni taka 25 félög þátt í mótinu, þar af eitt frá Bandaríkjunum, og senda félögin 104 lið til keppni.