Herjólfur setur stefnuna á Landeyjahöfn og siglir eina ferð til Landeyjahafnar fyrri part dagsins. Þetta segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Brottför er frá Vestmannaeyjum kl. 07.00 og frá Landeyjahöfn kl. 10.45.
Hvað varðar siglingar seinni partinn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00 í dag. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni, segir ennfremur í tilkynningu skipafélagsins.
Uppfært kl. 11.55.
Herjólfur setur stefnuna til Landeyjahafnar og siglir skv. eftirfarandi áætlun: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 14.30 og 17.00. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 15.45 og 20.00 – bíður eftir strætó.
Hvað varðar siglingar á morgun verður gefin út tilkynning kl 06.00 í fyrramálið.