Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfoss liðið sem var 2 til 3 skrefum á eftir Aftureldingu í öllu sem þeir gerðu. Sóknin var ómarkviss og byggðist eingöngu á einstaklingsframtaki og þrátt fyrir 14 skoruð mörk í fyrri hálfleik þá var sóknarleikurinn slakur. Þá var varnarleikurinn afleitur og lék Afturelding sér að framliggjandi vörn Selfyssinga. Selfoss reyndi þá að taka Bjarna Aron úr umferð þar sem hann fór hreinlega hamförum í byrjun leiks og skoraði hvert markið á fætur öðru. Allt kom fyrir ekki og Afturelding leysti það auðveldlega líka. Staðan í hálfleik var því 19 – 14 fyrir heimamenn.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst