Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi í Suðurkjördæmi
Oddvitar flokkanna (sem sæti eiga á þingi) í Suðurkjördæmi. Mynd/samsett

Í dag birtust niðurstöður úr nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og eru helstu breytingar milli mælinga þær að fylgi Sósíalistaflokks Íslands minnkar um rúmt prósentustig. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0,1-1,2 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar.

Nær 31% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag og hefur það hlutfall farið stöðugt hækkandi frá síðustu Alþingiskosningum. Næstum 22% kysu Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 14% Viðreisn, liðlega 9% Miðflokkinn, tæplega 8% Flokk fólksins, rösklega 5% Framsóknarflokkinn, tæplega 4% Vinstri græn, ríflega 3% Sósíalistaflokkinn og Pírata og nær 1% aðra flokka. Tæplega 6% myndu skila auðu eða ekki kjósa og hátt í 13% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Slétt 67% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina.

Sjálfstæðisflokkur rúmu prósenti yfir Samfylkingu í Suðurkjördæmi

Það er RÚV sem deilir niðurstöðunum þjóðarpúlsins með Eyjafréttum. Þar sést einnig fylgið í hverju kjördæmi fyrir sig. Í Suðurkjördæmi mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 25,3%. Næstmest fylgi í kjördæminu hefur Samfylkingin sem mælist nú með 24,1%. Flokkur Fólksins er þriðji stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi með 12,9%.

Miðflokkur nýtur stuðnings 12,5% og Framsókn er með 10,4%. Viðreisn mælist með samkvæmt könnuninni 9,3% fylgi í Suðurkjördæmi. Aðrir flokkar mælast með undir 4% fylgi í kjördæminu.

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.