Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi frá því í síðustu bæjarstjórnarkosningum en samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar, sem gerð var fyrir Morgunblaðið, fengi flokkurinn nærri 70% atkvæða. �?etta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en ef þetta væri niðurstaða kosninganna, myndi Sjálfstæðisflokkurinn bæta við sig manni á kostnað Eyjalistans en þetta eru einu framboðin í bæjarstjórnarkosningunum 2014. Sjálfstæðisflokkurinn fengi því fimm bæjarstjórnarfulltrúa, en hefur nú fjóra. Forveri Eyjalistans, Vestmannaeyjalistinn, hefur nú þrjá en Eyjalistinn fær aðeins tvo, verði þetta niðurstaða kosninganna.
Í Morgunblaðinu er m.a. haft eftir Jórunni Einarsdóttur að mikið verk sé fyrir höndum. �??Við höfum sannarlega sýnt það að við höfum margt til málanna að leggja og eigum fullt erindi við Vestmannaeyinga,�?? segir Jórunn.