Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum lýsir yfir fullu trausti á formann og varaformann flokksins en ályktun þess efnis var samþykkt á fundi ráðsins í gær. Þá var einnig ályktað um Evrópusambandið en ráðið harmar að enginn af 14 verkstjórum málefnaflokka landsþings Sjálfstæðisflokksins skuli vera af landsbyggðinni og sömuleiðis harmar fulltrúaráðið þá ákvörðun að fella sjávarútvegsmál undir málaflokkinn auðlindamál fyrir landsþingið. Ályktanirnar tvær má lesa hér að neðan.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst