Líkast til er rigningunni síðustu dægrin um að kenna að lítill skemmtibátur var við það að sökkva í kvöld í höfninni í Vestmannaeyjum. Tuttugu félagar í björgunarsveitinni brugðust skjótt við, náðu bátnum upp og dældu úr honum sjónum. Arnór Arnórsson, formaður Björgunarfélags Vestmannaeyja segir að aðgerðin hafi tekið um tuttugu mínútur. Hann segir allt óvíst um skemmdir. Eigandinn verði að meta það, en hann er ekki á staðnum um þessar mundir. ruv.is greindi frá.
Myndir og myndskeið af björgunaraðgerðunum í kvöld tók Sighvatur Jónsson sem er hægt að sjá
hérna.