Kvennalið ÍBV er komið með bakið upp að vegg í einvíginu gegn Fram í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta. ÍBV tapaði í dag fyrir Fram á heimavelli, 18:22 sem þýðir að Fram er komið í 2:0 í einvíginu en þrjá sigurleiki þarf til að komast áfram. Næsti leikur liðanna verður næstkomandi mánudag á heimavelli Framara.