Slippurinn In Memoriam – Síðasta kvöldmáltíðin
Gísli Matt, meistarakokkur og hugsjónarmaður og Páll. Báðir ánægðir með kvöldið.
„Ég gekk út af Slippnum í síðasta sinn í gærkvöldi. Aldrei hef ég snætt níu rétta veislumáltíð (myndir fylgja af ígulkerjum, skötuselskinnum og skyrdesert!) með meiri trega; eiginlega með kökk í hálsinum í hverjum bita! Fjórtán sumra sælkeraveislu er lokið. Frumlegasti og að flestu leyti besti veitingastaður á Íslandi skellir formlega í lás í kvöld,“ segir Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar með meiru á Fésbókarsíðu sinni í dag. Þar var hann mættur með eiginkonuinni Hildi Hilmarsdóttur og fleira góðu fólki.
Páll heldur áfram: „Andsk… hafi það! Ég hika ekkert við að segja að tilkoma þessa veitingastaðar var mikill menningarauki fyrir okkur hér í Eyjum. Og hróður staðarins barst um víða veröld. Einu sinni hitti ég tvo Bandaríkjamenn á förnum vegi hér í Eyjum og þeir spurðu mig hvar þeir gætu séð lunda. Ég sagði þeim það – og spurði á móti hvort það hefði verið helsti tilgangurinn með komunni til Eyja. Svarið var: „Nei. Við komum til Íslands til að borða á Slippnum en fyrst hann er hér í Vestmannaeyjum langar okkur að sjá lunda í leiðinni’’.
Sumarið 2023 héldu forsætisráðherrar Norðurlandanna fund sinn hér í Eyjum í tilefni þess að 50 ár voru liðin frá goslokum. Sérstakur gestur var Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada. Það var snæddur kvöldverður á Slippnum og Trudeau varð yfir sig hrifinn af matnum – og að honum loknum spurði hann hvort hann gæti fengið mynd af sér með matreiðslumeistaranum. Gísli Matthías varð góðfúslega við þeirri beiðni😊 Einn af öryggisvörðum Trudeau hvíslaði því að mér að hann hefði fylgt forsætisráðherranum hvert fótmál í meira en fimm ár og þetta væri í fyrsta sinn sem hann hefði beðið um mynd af sér með einhverjum!
Ég er ekki viss um að margir hafi freistast oftar en ég til að borða á Slippnum í þessi 14 ár – og desertarnir orðnir miklu fleiri en ég kæri mig um að muna. Það er því með trega sem ég segi við Gísla Matthías, fjölskylduna og allt starfsfólkið í öll þessi ár – það sama og börnin læra í leikskólanum:
Takk fyrir matinn – hann var góður!“ eru lokaorð Páls og er þá engu logið.
Tveir af níu réttum sem Páll og Hildur gæddu sér á á næst síðasta kvöldi Slippsins.

Nýjustu fréttir

Loðnuvertíð í hámarki
Perlað fyrir Kraft í Höllinni
Dýpi í Landeyjahöfn ekki nægilegt nema við bestu aðstæður
Aðalfundadagur sjálfstæðisfélaganna í Eyjum
Herjólfur til Þorlákshafnar
ÍBV fær Aftureldingu í heimsókn
Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 
Fullfermi á báðum togurum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.