Starfslokin breyttust á augabragði
Peninga
Stærsti sexfaldi pottur sögunnar gaf vel af sér um þarsíðustu helgi.

Stærsti sexfaldi pottur sögunnar gaf vel af sér um þarsíðustu helgi en alls voru um 18 þúsund manns sem fengu vinning, þar af voru sjö með bónusvinninginn og 15 voru með annan vinning í Jóker. Tveir ofurheppnir spilarar voru svo með allar tölurnar réttar og hlaut hvor um 57 milljónir í sinn hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Annan miðann áttu hjón sem standa á miklum tímamótum en auk þess að vera við starfslok höfðu þau nýverið selt húsnæðið sitt til að komast í búsetu sem hentar betur þeirra þörfum. Vegna óvæntra útgjalda, á borð við uppgreiðslukostnað lána, var eftirtekjan allnokkru minni en þau höfðu gert ráð fyrir. Það voru því sterkar tilfinningar sem gerðu vart við sig þegar ljóst var að stóri vinningurinn hefði breytt þessari jöfnu til batnaðar um 57 milljónir og enn meiri tilhlökkunar til efri áranna.

Hinn vinningshafinn ætlar bara að sækja sínar 57 milljónir seinna

Hinn heppni miðaeigandinn, sem er áskrifandi og býr á landsbyggðinni, tók fréttunum af öllu meiri ró og sagðist einfaldlega ætla að koma og sækja vinninginn næst þegar hann ætti eitthvað erindi í höfuðborgina.

Við óskum vinningshöfunum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

Nýjustu fréttir

85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.