Skömmu eftir að átök brutust út í �?kraínu í upphafi árs 2014 fór, Eyjamaðurinn og ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Stefán Haukur Jóhannesson til starfa sem yfirmaður alþjóðlegs eftirlitsteymis �?ryggis og Samvinnustofnunar Evrópu �?SE í Kænugarði. Á sýningunni eru ljósmyndir sem Stefán Haukur tók í störfum sínum en hann ferðaðist m.a. til Chernobyl sem var vettvangur eins stærsta kjarnorkuslyss sögunnar árið 1986 og fór að flaki malasísku farþegavélarinnar sem skotin var niður skammt frá rússnesku landamærunum 17. júlí 2014. Auk þess eru ljósmyndir af mannlífinu í Kænugarði, einkum Maidan torgi í miðborginni sem var vettvangur borgarabyltingarinnar.
Stefán Haukur er fæddur og uppalinn Eyjapeyi, sonur hjónanna Jóhannesar Tómassonar (í bankanum) og Guðfinnu Stefánsdóttur (Minnu í Skuld). Hann á að baki langan feril í utanríkisþjónustunni. Hann hefur gegnt ýmsum ábyrgðastöðum heima og erlendis m.a. sem sendiherra Íslands í Genf og Brussel.
Stefán Haukur leiddi samningaviðræður um aðild Rússlands að Alþjóðaviðskiptastofnunni, var aðalsamningamaður Íslands í viðræðum við ESB auk þess að hafa gegnt formennsku í gerðardómi í milliríkjadeilu um alþjóðaviðskipti. Stefán Haukur er áhugaljósmyndari og er myndavélin iðulega með í för við leik og störf. Sýningin verður opnuð 19. mars kl. 13. Stefán Haukur segir frá átökunum og byltingunni í �?kraínu og störfum sínum þar.
Tónlistarflutningur: Kitty Kovács og Balázs Stankowsky. Ljósmyndasýningin er í Einarsstofu, í Safnahúsi Vestmannaeyja, og stendur yfir 19. mars �??19. apríl. Opið á opnunartíma Safnahúss, virka daga 10-18 og laugardaga 13-16. Opnunarhelgi sýningarinnar verður opið laugardag og sunnudag 13-17.