Kvennalið ÍBV mætir úrvalsdeildarliði Hauka í 8-liða úrslitum Visabikarkeppninnar í dag en leikurinn hefst á afar óvenjulegum tíma eða klukkan 16.00. Síðast þegar liðin léku á Hásteinsvelli, 24. júní 2009, þá fóru Eyjastúlkur illa með Hauka og unnu 4:0. Haukar komust hins vegar upp úr 1. deild á meðan Eyjastúlkur sátu eftir. En þótt Haukar leiki deild ofar í Íslandsmótinu, þá er ekki spurt að því í bikarkeppninni og má búast við hörkuleik í dag.