Aganefnd HSÍ ákvað á fundi sínum í dag, að sekta Svavar Vignisson, þjálfara ÍBV um 25 þúsund krónur fyrir ummæli sín eftir leik Gróttu og ÍBV í 8- liða úrslitum Íslandsmótsins. Svavari er ekki refsað fyrir að hafa sagst fundið áfengislykt af öðrum dómaranum en er refsað fyrir ummælin „…enda dæmdi hann eins og hann væri fullur,“ og „og svo dæma þeir báðir eins og þeir séu blindfullir“. Úrskurð aganefndar má sjá hér að neðan.