Talverð umræða hefur skapast eftir viðtöl Eyjafrétta við fjóra skipstjóra í Vestmannaeyjum, þar sem þeir lýsa skoðunum sínum á Landeyjahöfn og skipinu sem fyrirhugað er að smíða til siglinga þangað. Í gær féllu niður allar ferðir Herjólfs vegna ölduhæðar, en ekki siglt í Þorlákshöfn í staðinn, er slíkt ásættanlegt fyrir okkur og hver er ástæðan. Óskar Elías Óskarsson skrifar á sína facebooksíðu að alls hafi fallið niður 60 ferðir Herjólfs í Landeyjahöfn, það sem af er þessu ári. Guðlaugur Ólafsson skipstjóri á Herjólfi svarar þessum pistli Óskars: