Karlalið ÍBV tekur í dag á móti Víkingi Ólafsvík á Hásteinsvelli en leikur liðanna hefst klukkan 17:00. Gengi Eyjamanna undanfarið hefur verið allt annað en gott, liðið hefur tapað síðustu fjórum leikjum sínum en rétt er að taka fram að þrír leikjanna voru á útivelli og í þremur af þessum fjórum leikjum léku Eyjamenn gegn FH, KR og Breiðabliki. Gengi Víkinga hefur ekki verið gott í sumar, liðið hefur aðeins unnið tvo leiki og en gert fimm jafntefli, m.a. gegn ÍBV á Ólafsvík í fyrri leik liðanna.