Vatn loksins farið að renna í laugina

Undirbúningur við sundlaugina í Vestmannaeyjum gengur vel og styttist nú í að hægt verði að prófa nýjan búnað. Þetta kemur fram á vefsíðu bæjaryfirvalda. Þar segir jafnframt að fulltrúi frá verkfræðistofunni Eflu sé væntanlegur í dag til að ljúka síðustu verkþáttum verkefnisins. Ennfremur segir að vatn sé nú farið að renna í laugina og ef […]
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld

Eyjalistinn hefur kynnt framboðslista sinn fyrir komandi kosningar í Vestmannaeyjum. Tillaga uppstillingarnefndar var lögð fram á félagsfundi í síðustu viku þar sem listinn var samþykktur samhljóða. Arndís María Kjartansdóttir leiðir listann. Í næstu sætum eru Anton Örn Björnsson, Erlingur Guðbjörnsson, Hildur Rún Róbertsdóttir og Jessý Friðbjarnadóttir. Fram kom í tilkynningu að Arna Huld Sigurðardóttir, formaður Eyjalistans, hafi þakkað uppstillingarnefnd fyrir störf hennar og þær ábendingar sem bárust í ferlinu. Hún þakkaði einnig núverandi bæjarfulltrúum listans, Njáli Ragnarssyni og Helgu Jóhönnu Harðardóttur, fyrir störf þeirra á kjörtímabilinu, en þau gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi […]
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja

Tvö tilboð bárust í útboð Vegagerðarinnar um áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja fyrir tímabilið 2026–2029. Norlandair reyndist með lægsta tilboðið. Tilboð félagsins nam 136,3 milljónum króna, en Icelandair bauð 146,3 milljónir króna. Áætlaður verktakakostnaður Vegagerðarinnar var 121,9 milljónir króna. Samningurinn er til þriggja ára, frá 1. september 2026 til 30. nóvember 2029, með möguleika á framlengingu, […]
„Hörkufiskirí”

Vestmannaey VE og Bergey VE hafa verið að fiska afar vel að undanförnu. Hafa bæði skip landað þrisvar sinnum fullfermi á innan við viku. Þau lönduðu í Þorlákshöfn í gær og voru skipstjórarnir ánægðir með aflabrögðin, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að um sannkallað […]
Gular viðvaranir í öllum landshlutum

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á öllum spásvæðum landsins. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi í nótt kl. 01:00 og gildir til kl. 08:00 á laugardagsmorgun. Í viðvörunarorðum fyrir landshlutann segir: Suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum og slæmu skyggni. Líkur á versnandi færð, einkum á fjallvegum. Varasamt ferðaveður. Einnig má búast má við […]
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar

Fjölgreindarleikum 1. til 7. bekkjar GRV lauk í gær eftir tvo viðburðaríka og skemmtilega daga. Leikarnir eru byggðir á kenningum Howards Gardners um fjölgreindir, þar sem lögð er áhersla á að nemendur fái að spreyta sig á fjölbreyttum verkefnum sem reyna á ólíka styrkleika. Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu Grunnskóla Vestmannaeyja. Þar segir að nemendur […]
Boranir hefjast í apríl

Eyjagöng ehf. hafa gert samning við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmd kjarnaborana sem liður í áframhaldandi könnun á fýsileika fastrar vegtengingar milli lands og Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Markmið rannsóknanna er að afla ítarlegra upplýsinga um jarðfræðilegar aðstæður á fyrirhugaðri leið. Boranirnar munu fara fram á tveimur stöðum, annars vegar […]
Fjölbreytt efni í nýju tölublaði Eyjafrétta

Nýtt tölublað Eyjafrétta er komið út og spannar efnið vítt svið samfélagsins í Vestmannaeyjum, allt frá atvinnulífi og stjórnmálum til mannlífs og menningar. Forsíðuefni blaðsins er um lok loðnuvertíðar, sem gekk vel hjá bæði Ísfélaginu og Vinnslustöðinni. Fyrirtækin náðu að veiða allan úthlutaðan kvóta og framleiðsla var í samræmi við áætlanir. Töluverð umfjöllun er um […]
Opið hús og kertalýsing – myndir

Krabbavörn bauð til opins húss í Arnardrangi í dag í tilefni af Mottumars. Þar komu félagar og gestir saman, nutu samveru og fengu sér kaffi og meðlæti. Að lokinni samveru var haldið að minnisvarða Oddgeirs Kristjánssonar þar sem kveikt var á 37 kertum til minningar og stuðnings. Kertin loguðu í kvöldkyrrðinni og settu hátíðlegan svip […]
Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR

Kvennalið ÍBV í handbolta sigraði ÍR örugglega, 33-25, í næst síðustu umferð Olís deildar kvenna í Eyjum í kvöld. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með og var staðan 5-4 Eyjakonum í hag, eftir tíu mínútur. Þegar stundarfjórðungur var liðinn byrjuðu Eyjakonur hægt og rólega að auka forskot sitt og náðu þriggja marka forystu, […]