Vatn loksins farið að renna í laugina
Innisundlaugin í Eyjum hefur verið lokuð í fleiri mánuði vegna viðhalds. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Undirbúningur við sundlaugina í Vestmannaeyjum gengur vel og styttist nú í að hægt verði að prófa nýjan búnað. Þetta kemur fram á vefsíðu bæjaryfirvalda. Þar segir jafnframt að fulltrúi frá verkfræðistofunni Eflu sé væntanlegur í dag til að ljúka síðustu verkþáttum verkefnisins.

Ennfremur segir að vatn sé nú farið að renna í laugina og ef allt gengur að óskum verður hægt að hefja keyrslu á kerfinu um helgina eða strax eftir helgi. „Vonir standa til að hægt verði að opna sundlaugina seinni partinn í næstu viku ef allt gengur upp.”

Nýjustu fréttir

Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.