„Hörkufiskirí”
Eyjarnar 20250826 081915
Landað úr Vestmannaey VE. Á bakvið hana er Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaey VE og Bergey VE hafa verið að fiska afar vel að undanförnu. Hafa bæði skip landað þrisvar sinnum fullfermi á innan við viku. Þau lönduðu í Þorlákshöfn í gær og voru skipstjórarnir ánægðir með aflabrögðin, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að um sannkallað rótarfiskirí væri að ræða. „Þetta hefur gengið mjög vel síðustu dagana en við höfum verið að veiðum á Selvogsbankanum. Aflinn í túrnum núna var mest þorskur og ufsi ásamt blöndu af öðrum tegundum. Það eina sem skyggði á þennan túr var veðrið en það var kaldi og stormur til skiptis allan tímann. Í reyndinni er merkilegt hvað hefur gengið vel síðustu dagana miðað við að það hefur meira og minna verið vitlaust veður,” sagði Egill Guðni.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var ekki síður sáttur en Egill Guðni. „Þetta var stutt og laggott hjá okkur. Hörkufiskirí, en við vorum núna á Pétursey allan tímann. Aflinn var mest ýsa og þorskur en það var ufsi og fleira með. Þetta er virkilega fínn fiskur sem fæst þarna. Menn eru bara mjög hressir með aflabrögðin eins og þau hafa verið og það eina sem skyggir á er veðrið sem mætti vera mun betra,” sagði Jón.

Að löndun lokinni héldu bæði skipin til Eyja en vart er gert ráð fyrir að þau haldi til veiða á ný fyrr en á laugardag vegna slæms veðurútlits. Hann spáir vonskuveðri og gera má ráð fyrir ”suðvestan helvítis öldu” að mati Jóns Valgeirssonar.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.