Perlað fyrir Kraft í Höllinni

Félagið Kraftur, sem styður ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, stendur fyrir perlun armbanda í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn nk. frá klukkan 13-16. Viðburðurinn er hluti af árlegri fjáröflunar- og vitundarvakningu félagsins. Að þessu sinni verður perlað nýtt „Lífið er núna“ armband, sem margir þekkja sem tákn um styrk, von og […]

Dýpi í Landeyjahöfn ekki nægilegt nema við bestu aðstæður

Dýpi í Landeyjahöfn er enn ekki orðið nægilegt til siglinga til og frá höfninni nema við bestu aðstæður, samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að tilkynning um siglingar Herjólfs seinnipart dags verði gefin út fyrir klukkan 15:00, en fyrsta ferð dagsins var til Þorlákshafnar. Eyjafréttir hafa jafnframt heimildir fyrir því að dýpkunarskipið Álfsnes […]

Aðalfundadagur sjálfstæðisfélaganna í Eyjum

Áður boðaðir aðalfundir sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum verða haldnir í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðismanna í dag, fimmtudaginn 12. febrúar. Aðalfundur Eyverja verður haldinn kl. 17:00. Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja verður kl. 20:00 og aðalfundur Fulltrúaráðs verður kl. 21:00. Á dagskrá fundanna eru venjuleg aðalfundarstörf, segir í tilkynningu frá stjórnum Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. (meira…)

Herjólfur til Þorlákshafnar

24 DSC 4724

Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar fyrri part dags í dag vegna aðstæðna og dýpis í Landeyjahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu. Þar segir jafnframt að brottför sé frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:00 og brottför frá Þorlákshöfn klukkan 10:45. Tilkynning um siglingar seinni part dags verður gefin út fyrir klukkan 15:00. Farþegar eru minntir […]

ÍBV fær Aftureldingu í heimsókn

ÍBV tekur á móti Aftureldingu í 18. umferð Olísdeild karla í kvöld klukkan 19:30 í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Viðureignin gæti reynst afar mikilvæg í baráttunni um efri sæti deildarinnar en aðeins tvö stig skilja liðin að fyrir leikinn. Afturelding situr í þriðja sæti með 23 stig á meðan ÍBV er í sjötta sæti með 21 stig og getur […]

Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 

Telja má niður í stærsta partý ársins þegar Þjóðhátíðarupphitun 2026 fer fram – tónleikar sem ætlaðir eru til að kveikja í brekkusöngsandanum og hita landsmenn rækilega upp fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Með Stuðlabandið í fararbroddi og fjölbreyttan hóp vinsælla listamanna á sviði verður boðið upp á lög sem hafa markað Þjóðhátíð þessarar aldar, ásamt ómissandi sígildum smellum. Hér […]

Fullfermi á báðum togurum

bergey_opf

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE eru að gera það gott. Bergey landaði tæplega 50 tonnum í Eyjum á laugardag og er aftur að landa þar fullfermi í dag. Vestmannaey landaði einnig fullfermi í Þorlákshöfn á mánudagskvöld. Rætt er við við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var sáttur við […]

Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært

lan_alfsn

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í stað Landeyjahafnar í dag vegna ófullnægjandi dýpis í síðarnefndu höfninni. Vegagerðin er ósátt með að ekki sé verið að dýpka í dag, en áætlað er að um 20 þúsund rúmmetra þurfi enn að fjarlægja og gæti verkið tekið allt að fjóra daga við hagstæð skilyrði. Óvissa er um siglingar Herjólfs […]

Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra, sem saman leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs á árinu. Í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að áhersla sé á að bæta og jafna tækifæri fólks til […]

Fullorðinsfimleikar hjá Rán

Fimleikafélagið Rán mun í mars bjóða upp á sérstakt námskeið í fullorðinsfimleikum. Um er að ræða fjögurra vikna námskeið þar sem fullorðnum (16 ára og eldri) býðst að koma að æfa fimleika. Námskeiðið hentar fullorðnum á öllum getustigum sem vilja prófa skemmtilega og fjölbreytta hreyfingu í góðum félagsskap. Æfingar fara fram á fimmtudögum kl 19:15 […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.