Dýpi í Landeyjahöfn ekki nægilegt nema við bestu aðstæður
Landeyjahöfn. Eyjafréttir /Eyjar.net: TMS

Dýpi í Landeyjahöfn er enn ekki orðið nægilegt til siglinga til og frá höfninni nema við bestu aðstæður, samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að tilkynning um siglingar Herjólfs seinnipart dags verði gefin út fyrir klukkan 15:00, en fyrsta ferð dagsins var til Þorlákshafnar.

Eyjafréttir hafa jafnframt heimildir fyrir því að dýpkunarskipið Álfsnes hafi verið við störf í og við höfnina í nótt. Dýptarmælingin sem vísað er til í tilkynningu Herjólfs er hins vegar frá því í gær og því má búast við að staðan verði endurmetin þegar nýjar mælingar liggja fyrir.

Nýjustu fréttir

Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Þorskurinn eltir síldina fyrir austan
Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.