Perlað fyrir Kraft í Höllinni
Perlað verður í Höllinni á laugardaginn n.k.

Félagið Kraftur, sem styður ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, stendur fyrir perlun armbanda í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn nk. frá klukkan 13-16.

Viðburðurinn er hluti af árlegri fjáröflunar- og vitundarvakningu félagsins. Að þessu sinni verður perlað nýtt „Lífið er núna“ armband, sem margir þekkja sem tákn um styrk, von og samstöðu.

Markmið viðburðarins er að vekja athygli á starfi Krafts og safna fé til að styðja við bakið á ungu fólki sem hefur greinst með krabbamein, sem og fjölskyldum þeirra og aðstandendum. Allir eru velkomnir að taka þátt, perla armband og leggja málefninu lið.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.