Frístundarverið og Tónlistarskólinn undir þak Hamarsskóla?

Á fundi fræðsluráðs í gær fór fram umræða um tillögu fulltrúa D-listans frá síðasta fundi um framtíðarsýn í húsnæðismálum GRV. Þar var lagt til að stofnaður verði starfshópur sem skoðar kosti þess að byggja við Hamarsskóla þannig að þar rúmist starfsemi Tónlistarskólans, frístundavers og að þar verði matar- og hátíðarsalur fyrir starfsemi skólanna. Fulltrúar D-listans lögðu […]
Lykiltölur í fjárhagsáætlun ársins 2019

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri hafði framsögu um fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2019 og gerði grein fyrir helsu rekstrarliðum í áætluninni í gær þegar bæjarstjórn fundaði. Við umræðu um fjárhagsáætlun 2019 tóku einnig til máls: Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Trausti Hjaltason, Elís Jónsson, Njáll Ragnarsson. Á fundinum bar Elís Jónsson forseti bæjarsjórnar bar upp lykiltölur […]
Tillögur Sjálfstæðisflokksins við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær var fyrri umræða um fjárhagsáætlun ársins 2019. Í áætluninni líkt og í ársreikningum Vestmannaeyjabæjar 2017 er sterk staða sveitarfélagsins óumdeilanleg enda hefur aðhald og ábyrgð í rekstri á undanförnum kjörtímabilum verið keppikefli Sjálfstæðisflokksins. Ábyrg fjármálastjórnun er enda grundvöllur að aukinni þjónustu við íbúa og minni álögum. Við fyrri umræðu […]
1539. fundur Bæjarstjórnar Vestmannaeyja

1539. fundur Bæjarstjórnar Vestmannaeyja haldinn í Einarsstofu safnahúsi, 8. nóvember 2018 og kl. 18.00 Dagskrá Almenn erindi 1. 201810026 – Fjárhagsáætlun ársins 2019 – Fyrri umræða – 2. 201810205 – Þriggja ára fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2020-2022 – Fyrri umræða – 12. 201808173 – Dagskrá bæjarstjórnafunda Fyrir bæjarstjórn liggur fyrir áætlun að dagsetningum næstu bæjarstjórnafunda. 22. nóvember 2018, hátíðarfundur. 6. […]
Styrkja útgáfu meðferðarbókar sem tekur á kvíða

Fjölskyldu- og tómstundaráð samþykkti á fundi sínum í gær, 31. október, að veita Thelmu Gunnarsdóttur og Árnýju Ingvarsdóttur 300.000 kr. fjárstyrk. Styrkurinn er vegna útgáfu á nýrri meðferðarbók fyrir börn og unglinga sem tekur á kvíða hjá eldri börnum, á aldrinum 9 til 13 ára. „Markmið bókarinnar er að hjálpa börnum að takast á við alvarlegan […]
Rætt um skipulag tjaldsvæða á þjóðhátíð

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar í gær, miðvikudaginn 31. október, voru kynntar niðurstöður vinnuhóps um skipulag tjaldsvæða á Þjóðhátíð niðurstöður sýnar. Hópurinn er skipaður er af Jónu Sigríði Guðmundsdóttur, Dóru Björk Gunnarsdóttur og Páli Scheving ásamt Ólafi Þór Snorrasyni framkvæmdastjóra sviðsins. Eftir að hafa fundað í tvígang leggur hópurinn tvennt til. Að tjaldsvæðaþörf verði […]
Nýr botnlangi að rísa í Goðahrauni

Þrjár umsóknir um byggingarleyfi í Goðahrauni voru meðal mála sem lágu fyrir á 292. fundi umhverfis- og skipulagsráðs síðast liðinn mánudag. En fyrir hafa þegar eru að rísa tvö hús við sama botlangan sem enn á þó eftir að klára. Um er að ræða lóðirnar Goðahraun 6, 8 og 10 og eru umsóknirnar þrjár allar […]
Bygging raðhúss í Áshamri samþykkt

Enn er rætt um lóðina sunnan við Áshamar 1 en bæjarstjórn samþykkti á fimmtudaginn byggingu raðhúss á lóðinni með fjórum atkvæðum H- og E-lista gegn tveimur atkvæðum D-lista. Eyþór Harðarson D-lista sat hjá. Fyrir fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 27. ágúst lá fyrir umsókn frá Júlíusi Hallgrímssyni á lóðum sunnan við Áshamar 1 til byggingar tveggja […]
Frístundastyrkur í boði frá tveggja ára aldri

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða á fundi sínum á fimmtudaginn að lækka aldursviðmið vegna frístundastyrks niður í tveggja ára aldur í stað sex. „Markmiðið með þessari breytingu er að styrkja fleiri aldurshópa til þátttöku í uppbyggilegu frístundastarfi og auka möguleika til þátttöku óháð efnahag. Því fyrr sem börn byrja að kynnast skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi þeim mun […]
Átak í umferðaöryggi leik- og grunnskólabarna

Átak í umferðaöryggi leik- og grunnskólabarna var meðal þess sem rætt var á 308. fundi færðsluráðs í gær fimmtudaginn 27. september. „Fræðsluráð leggur til að gert verði átak í umferðaröryggi leik- og grunnskólabarna. Ráðið felur framkvæmdastjóra að afla upplýsinga um slysatíðni og fjölda umferðaslysa barna hjá lögreglu. Jafnframt felur ráðið framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðsusviðs að […]