Frístundarverið og Tónlistarskólinn undir þak Hamarsskóla?

Á fundi fræðsluráðs í gær fór fram umræða um tillögu fulltrúa D-listans frá síðasta fundi um framtíðarsýn í húsnæðismálum GRV.

Þar var lagt til að stofnaður verði starfshópur sem skoðar kosti þess að byggja við Hamarsskóla þannig að þar rúmist starfsemi Tónlistarskólans, frístundavers og að þar verði matar- og hátíðarsalur fyrir starfsemi skólanna.

Fulltrúar D-listans lögðu fram eftirfarandi tillögu um framtíðarsýn í húsnæðismálum GRV:
,,Húsnæðiskostur Tónlistarskólans í Vestmannaeyjum er farinn að þarfnast verulegra úrbóta. Húsnæðið er orðið gamalt og aðgengi sérstaklega fyrir hreyfihamlaða ekki eins og best verður á kosið. Hamarskóla hefur gjarnan vantað matar- og samkomusal og frístundaverið hefur verið í húsnæði sem ekki var hannað fyrir starfsemi þess og þörf er á að koma í hentugra húsnæði til frambúðar og tengja það við skólann. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja því til að stofnaður verði starfshópur sem skoðar kosti þess að byggja við Hamarsskóla þannig að þar rúmist starfsemi Tónlistarskólans, frístundavers og að þar verði matar- og hátíðarsalur fyrir starfsemi skólanna. Markmið hópsins verður m.a. að koma með lausnir fyrir skólana og frístundaver með það að leiðarljósi að koma á rekstrarhagræðingu, bæta aðstöðu Hamarsskóla, auka aðgengi að tónlistarnámi og koma í veg fyrir fækkun barna í tónlistarnámi, stytta vinnudag barnanna og ýta þannig undir samverustundir fjölskyldunnar og almennt gera fræðsluumhverfið aðgengilegra fyrir börn. 
Hópurinn verði skipaður skólastjóra GRV og aðstoðarskólastjóra Hamarsskóla, skólastjóra tónlistarskólans, framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs, framkvæmdastjóra framkvæmdasviðs, forstöðumanni frístundavers, formanni ráðsins, fulltrúa frá minnihluta og fulltrúa frá foreldraráði GRV. 
  Lagt er til að starfshópurinn skili af sér niðurstöðum fyrir lok síðari umræðna um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn.”

Tilögunni var hafnað með þremur atkvæðum meirihlutans gegn tveimur frá minnihluta. Þessu tóku fulltrúar Sjálfstæðisflokksins illa og sögðu mikilvægt að meiri- og minnihluti sameinist í góðum tillögum í stað þess að meirihluti eigni sér annarra verk. “Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gera athugasemd við að tillögu okkar var hafnað að því er virðist einungis til að meirihlutinn geti lagt fram samskonar tillögu og látið þannig líta út fyrir að vinna sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa þegar farið í sé ekki fullnægjandi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að meiri- og minnihluti sameinist í góðum tillögum í stað þess að meirihluti eigni sér annarra verk,” segir í bókun minnihlutans.

Var þá lögð fram breytingartillaga sem allir gátu sætt sig á. „Felur ráðið framkvæmdarstjóra sviðsins að meta stöðuna eins og hún er í dag og fari í framhaldi af því í þarfagreiningu m.t.t. starfsemi næstu ára. Markmiðið er að meta kosti þess að koma allri starfsemi grunnskóla, tónlistarskóla og lengdrar viðveru undir sama þak. Framkvæmdastjóri sviðsins vinnur matið og greininguna í samstarfi tilheyrandi aðila. Lagt er til að niðurstöðunum verði skilað til fræðsluráðs og liggi fyrir eigi síðar en 1. febrúar 2019.”

Nýjustu fréttir

Hvað gerist næst
Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins
Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka
Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar
Sterk hagsmunagæsla
Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 
Gústav Axel með kraftmikinn sjávarréttaseðil á Einsa Kalda á MATEY
Öflug menning mótar lífið
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.